Innan um gíga, hraun og einar mestu náttúruhamfarir Íslandssögunnar

Það er í senn mikilfenglegt og yfirþyrmandi að standa við …
Það er í senn mikilfenglegt og yfirþyrmandi að standa við Lakagígaröðina norðan Laka og hugsa til þeirra krafta sem þar voru að verki. Algjörlega einstakt landslag. mbl.is/Þorsteinn

Ég hef oft sagt að hálendið sé ekki jafn troðfullt af ferðamönnum og margir vilja halda fram, ef frá er tekin örþunn ræma meðfram Laugaveginum og nokkrir aðrir hlutar að Fjallabaki. Þar fyrir utan er nokkuð einfalt að finna staði þar sem maður er næstum alveg út af fyrir sig.

Einn þessara staða er Lakasvæðið og þá sérstaklega stígar og slóðar utan hefðbundna Lakahringsins. Síðasta sumar fór ég ásamt tveimur öðrum í slíka ferð þar sem við hittum engan og sáum engan í tvo og hálfan sólarhring, á sama tíma og við fórum í gegnum eitt stórfenglegasta umhverfi sem Ísland hefur upp á að bjóða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert