Neyðist til að opna veitingastaðinn

Fish House hefur nú opnað aftur í Grindavík.
Fish House hefur nú opnað aftur í Grindavík. Ljósmynd/Aðsend

„Manni líður eins og það eigi bara að sópa yfir vandamálin, loka blaðsíðunni og að menn eigi bara að fara að redda sér í Grindavík,“ segir veitingamaðurinn Kári Guðmundsson en hann neyddist til að opna veitingastað sinn Fish House í Grindavík aftur í síðustu viku eftir 18 mánaða lokun.

Spurður af hverju hann hafi ákveðið að opna Fish House aftur á þessum tímapunkti segir Kári svarið sáraeinfalt. Eftir að stuðningsaðgerðum ríkisins við grindvísk fyrirtæki var hætt 30. mars sé ekkert annað í stöðunni.

„Við neyðumst til að opna núna. Ríkið er hætt stuðningsaðgerðum og þar af leiðandi sjáum við okkur ekki annað fært en að opna, reyna að bjarga okkur svo við missum ekki allt saman. Við þurfum að standa í skilum og annað,“ útskýrir Kári.

Rekstrargrundvöllur ekki fyrirliggjandi

Hann segir rekstrargrundvöll ekki liggja fyrir sem stendur enda varla neinir íbúar í bænum og aðeins örfá fyrirtæki þar starfandi, þar á meðal annar veitingastaður.

„Maður er ekki að sjá að það sé gerlegt að opna yfir höfuð þar sem það eru engir íbúar í bænum og manni skilst að það sé ekki enn alveg óhætt að vera í bænum, mikið af sprungum og svæðið er mjög varasamt enn þá þó að fáir vilji tala um það.“

Fish House opnaði dyr sínar að nýju fyrir viku en Kári segir gestina sem hafi sótt staðinn hingað til fyrst og fremst vera erlenda ferðamenn. Sem stendur séu þeir þó ekki nógu margir til þess að reksturinn standi undir sér en Kári vonar að það breytist.

Þá segir hann ekki liggja fyrir hvort ríkið komi til með að styðja fyrirtæki í Grindavík sem hefji nú starfsemi sína að nýju.

„Það er verið að skoða það, taka saman einhverjar skýrslur og halda fundi en ekkert er komið á hreint. Þetta er allt voðalega loðið,” segir Kári.

Ástandið óbreytt

Fish House hóf rekstur árið 2016 og gekk vel framan af.

„Við erum búin að vera með þennan rekstur í 9 ár og hann hafði gengið vel. Við vorum bara í blómstra fyrir 10. nóvember og lífið okkar blasti bara við. Okkar mál voru í fínum málum en í dag er allt í molum og enginn til hjálpar. Það er martröð að lenda í þessu.“

„Það má segja að okkur hafi verið haldið í spennutreyju í 18 mánuði,“ segir Kári sem er mjög ósáttur við það hvernig ríkisstjórnin sem tók við í byrjun árs hefur tekið á málefnum Grindavíkur.

„Það er í sjálfu sér eins og nýja ríkisstjórnin sé að sópa yfir það sem flokkarnir lofuðu fyrir kosningar. Þeir lofuðu að hjálpa fyrirtækjum og fólki í Grindavík en nú hefur það allt verið svikið og fyrirtækin eiga bara að standa á eigin fótum þó svo að ástandið sé ekkert breytt síðan fyrir ári,“ segir Kári og bætir við:

„Við höfum til að mynda óskað eftir uppkaupum á húsnæði til þess að fólk gæti þá annaðhvort hafið nýjan reksturannars staðarr eða þá bara losnað úr þessari spennutreyju.“

Rekstrarkostnaður hærri en áður

Kári segir að sem betur fer hafi húsnæði staðarins staðið jarðhræringarnar ágætlega af sér og því hafi verið tiltölulega ódýrt að opna staðinn aftur. Rekstrarkostnaður sé þó mun hærri en áður var.

„Við erum með starfsfólk og þurfum að skaffa þeim bíl því þau eru að koma úr Reykjavík, þannig kostnaðurinn er miklu, miklu meiri,“ útskýrir Kári.

„Þetta er ekki bara eins og margir halda, nóg að gera í Grindavík og fullt af túristum á ferðinni. Að sjálfsögðu er eitthvað fólk á ferðinni en þetta er miklu flóknara en að opna bara einhvern stað í heimabæ sínum,“ segir Kári að lokum en bætir þó við að starfsfólk Fish House muni þrátt fyrir allt leggja áherslu aðá taka eins vel á móti gestum og hægt er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert