Umsvifalaust tilkynnt um starfslok

Kári Stefánsson hafði töglin og hagldirnar í Íslenskri erfðagreiningu um …
Kári Stefánsson hafði töglin og hagldirnar í Íslenskri erfðagreiningu um þriggja áratuga skeið, þekktasti mannerfðafræðingur heimsbyggðarinnar sem er „að springa úr monti yfir að hafa búið til bestu mannerfðafræðistofnun í heimi“. Stjórnendur móðurfyrirtækisins Amgen ráku Kára umsvifalaust frá störfum á fundi í Kaliforníu 1. maí og ræðir hann mál sitt við mbl.is í viðtali sem að vörmu spori má lesa hér á vefnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar til tæpra 29 ára, var fyrirvaralaust rekinn úr starfi 1. maí með aðferð sem hann kveður hafa markast af fantaskap af hálfu Amgen sem eignaðist ÍE í lok árs 2012. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá Kára sem í viðtali við mbl.is, væntanlegu hér á vefinn innan skamms, kveður ekki snefil af reiði eða beiskju í sinni hans við starfslokin.

Í tilkynningunni segir hann af því hvernig honum hafi verið tilkynnt um afdráttarlausa ákvörðun stjórnenda Amgen snemma eftirmiðdags síðasta fundardaginn í bænum Thousand Oaks í Kaliforníu þar sem föruneyti hans skipuðu þeir Patrick Sulem og Daníel Guðbjartsson.

Tjáð umsvifalaust að störfum hans væri lokið

Hafi hann einfaldlega verið sóttur inn á fund og beðinn að hitta lögfræðing í annarri byggingu á fundarvettvanginum. Hafi honum verið tjáð að sá hygðist ræða við hann hugmyndir hans um samvinnu við Abú Dabí.

„Þegar þangað kom var mér umsvifalaust sagt að störfum mínum fyrir ÍE væri lokið. Á meðan ég sat og hlustaði á yfirmann rannsókna og þróunar hjá Amgen útlista fyrir mér stöðu mála voru Daníel og Patrick teknir út af fundi og ekið út á flugvöll og síðan flogið heim í einkaþotu þannig að ég fékk ekki tækifæri til þess að ræða málin við þá,“ skrifar innsti koppur í búri Íslenskrar erfðagreiningar til tæpra 30 ára, Kári Stefánsson, sem gaumgæfði brottrekstrarmálið með mbl.is í dag í væntanlegu viðtali.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert