Myndir: Halla forseti sækir Svíakonung heim

Halla forseti veifaði til viðstaddra á meðan Karl Gústaf konungur …
Halla forseti veifaði til viðstaddra á meðan Karl Gústaf konungur fylgdist með. AFP

Þriggja daga ríkisheimsókn forsetahjónanna til Svíþjóðar hófst í dag. 

Það eru Karl XVI. Gústaf konungur og Silvía drottning sem bjóða til þessarar heimsóknar og er markmið hennar að styrkja hin góðu tengsl landanna og vinna að frekara samstarfi svo sem á sviði heilbrigðismála, kvikmyndagerðar og öryggismála.

AFP

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra taka einnig þátt í dagskrá heimsóknarinnar ásamt opinberri sendinefnd og fulltrúum viðskipta- og menningarlífs.

AFP

Dagskráin hófst með formlegri móttökuathöfn við Konungshöllina í Stokkhólmi en að henni lokinni á forseti fund með forseta löggjafarþingsins, Andreas Norlén, ásamt utanríkisráðherra og öðrum sendinefndarmönnum. Að loknum hádegisverði með konungshjónum eiga forseti og utanríkisráðherra sams konar fund með Ulf Kristersson forsætisráðherra og ræða þau í kjölfarið við fulltrúa fjölmiðla. Því næst skoða forseti og fylgdarlið varðbát í eigu sænsku Landhelgisgæslunnar, fræðast um starfsemi hennar og sigla um skerjagarðinn.

Á sama tíma fer Björn Skúlason með Silvíu Svíadrottningu í heimsókn á Silviahemmet. Það er dagvistunarúrræði sem drottning stofnaði til fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma, en eiginmaður forseta er verndari Alzheimer-samtakanna á Íslandi. Alma Möller heilbrigðisráðherra og Anna Tenje, ráðherra öldrunarmála í Svíþjóð, verða með í för. Drottning mun einnig fylgja Birni og heilbrigðisráðherra í Barnahus, sem er barnaverndarúrræði að íslenskri fyrirmynd.

Karl Gústaf Svíakonungur beygði sig eftir íslenska fánanum sem hafði …
Karl Gústaf Svíakonungur beygði sig eftir íslenska fánanum sem hafði fallið í götuna. AFP

Dagskránni í dag lýkur með hátíðarkvöldverði í Konungshöllinni.

Á morgun munu forsetahjónin m.a. heimsækja Karolinska sjúkrahúsið og Viðskiptaháskólann í Stokkhólmi.

AFP
Björn Skúlason, eiginmaður forseta Íslands, Halla Tómasdóttir forseti ásamt Karli …
Björn Skúlason, eiginmaður forseta Íslands, Halla Tómasdóttir forseti ásamt Karli Gústaf Svíakonungi og Silvíu drottningu fyrir utan konungshöllina í Stokkhólmi. AFP
AFP
Björn brá á leik fyrir ljósmyndara.
Björn brá á leik fyrir ljósmyndara. AFP
Prúðbúnir varðmenn til þjónustu reiðubúnir.
Prúðbúnir varðmenn til þjónustu reiðubúnir. AFP
AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert