Hæstiréttur sýknar Samkeppniseftirlitið

Samskip vildu láta ógilda úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem fól í …
Samskip vildu láta ógilda úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem fól í sér að kæru fyrirtækisins yrði vísað frá nefndinni. Ljósmynd/Samskip

Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Landsréttar um að sýkna Samkeppniseftirlitið af kröfu Samskipa. Landsréttur hafði sýknað Samkeppniseftirlitið í september.

Samskip vildu láta ógilda úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem fól í sér að kæru fyrirtækisins yrði vísað frá nefndinni.

Samskip kærði til nefndarinnar ákvæði í sátt sem Eimskip gerði í júní árið 2021 við SKE. Í sáttinni viðurkenndi Eimskip samráð við Samskip, féllst á að greiða sekt og skuldbatt sig til að hætta öllu viðskiptalegu samstarfi við Samskip.

Í kærunni krafðist Samskip þess að skuldbindingar Eimskips um að hætta öllu viðskiptalegu samstarfi við Samskip yrðu felldar úr gildi.

Héraðsdómur dæmdi Samskip í vil

Í tilkynningu á vef SKE, þar sem frá þessu er grein, segir að áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafi vísað kærunni frá þar sem Samskip hefði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn um skuldbindingar í sátt Eimskips.

Samskip stefndi Samkeppniseftirlitinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur, sem dæmdi fyrirtækinu í vil. Samkeppniseftirlitið áfrýjaði dómnum til Landsréttar sem sýknaði SKE. Hæstiréttur hefur nú staðfest þá niðurstöðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert