Listamaðurinn fær 88,5 milljónir

Tölvugerð mynd af listaverki Ólafs Elíassonar í Vestmannaeyjum.
Tölvugerð mynd af listaverki Ólafs Elíassonar í Vestmannaeyjum.

Listamaðurinn Ólafur Elíasson fær um 88,5 milljónir króna greiddar fyrir gerð minnisvarða um Vestmannaeyjagosið. Þetta kemur fram í samningi sem Vestmannaeyjabær gerði við Studio Reykjavik ehf., félag Ólafs.

Greint var frá þessu á vef Eyjafrétta en miðillinn óskaði eftir gögnum málsins frá sveitarfélaginu. Við því var ekki orðið fyrr en úrskurðarnefnd um upplýsingamál úrskurðaði að bænum bæri að afhenda gögnin.

Eyjafréttir hafa birt samning Vestmannaeyjabæjar og Studio Reykjavik ehf. og viðauka við hann. Í samningi kemur fram að listamaðurinn skuli fá greiddar 600 þúsund evrur fyrir vinnu sína og verk. Þessi kostnaður er eingöngu við verkið sjálft. Í frétt Eyjafrétta er rifjað upp að fram hefur komið að ríkið greiði helming kostnaðarins við listaverkið, eða allt að 50 milljónir króna. Vestmannaeyjabær greiðir hinn helminginn við kostnað verksins. Þá á eftir að greiða fyrir göngustíga, bílastæði og fleira er telst vera hluti af umræddri framkvæmd.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert