700 fermetra stækkun bráðamóttöku fyrir árslok

Bráðamóttaka Landspítalans í Fossvogi er löngu sprungin.
Bráðamóttaka Landspítalans í Fossvogi er löngu sprungin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bráðamóttaka Landspítala í Fossvogi verður stækkuð með 700 fermetra viðbótarhúsnæði sem á að vera tilbúið fyrir lok þessa árs.

Samningur Nýs Landspítala og Verkheima ehf. um verkið var undirritaður í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

Stórbætir aðstæður

Haft er eftir Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að stækkunin muni stórbæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks og skipta sköpum fyrir mikilvæga starfsemi þar til ný bráðamóttaka verður opnuð í meðferðarkjarnanum við Hringbraut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert