Rýnt í sögu Geirs á Kjarval

Stefán Einar Stefánsson og Geir H. Haarde.
Stefán Einar Stefánsson og Geir H. Haarde. mbl.is/Eyþór

Fyrsti viðburður Bókaklúbbs Spursmála fór fram á Vinnustofu Kjarvals í gær. Þar settist Geir H. Haarde niður með klúbbmeðlimum og ræddi ævisögu sína sem hann sendi frá sér á liðnu ári.

Í spjalli við Stefán Einar Stefánsson skerpti Geir á nokkrum málum sem hann ræðir í frásögn sinni í bókinni, meðal annars hinni dramatísku atburðarás þegar ríkissjóður Íslands stóð á barmi gjaldþrots í byrjun október 2008.

Húsfyllir var þegar ríflega 100 klúbbmeðlimir mættu til leiks. Hefur starf klúbbsins farið af stað af miklum krafti og nú í maímánuði er kafað ofan í næstu bók, Kúbudeilan 1962 eftir Max Hastings.

Markmið klúbbsins er að hvetja til lesturs á vönduðum bókum sem dýpka skilning fólks á sögu og samfélagi. Hægt er að skrá sig í klúbbinn hér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert