Sigurður dæmdur í átta ára fangelsi

Sexmenningarnir sem allir hafa neitað sök eru ákærðir fyrir skipulagða …
Sexmenningarnir sem allir hafa neitað sök eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sem ákærðu sammæltust um að fremja. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/mbl.is/Eggert

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Sigurð Kristinsson í átta ára fangelsi fyrir það sem kallað hefur verið stærsta kristal metam­feta­mín­mál Íslands­sög­unn­ar.

Meðákærðu Agurim Xixa, Baldur Þór Sigurðarson, Sigfús Bergmann Svavarsson og Elsa Ruth Róbertsdóttir munu einnig sæta fangelsisvist en maður sem í dómnum er nefndur Y hefur verið sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Sexmenningarnir sem allir hafa neitað sök voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sem ákærðu sammæltust um að fremja. Stóðu þau saman að innflutningi á 5.733,60 g af metamfetamín kristöllum, ætluðum til söludreifingar hér á landi. Efnin voru falin í bifreið af gerðinni Daimler Double Six sem kom til Þorlákshafnar 11. október með flutningaskipinu Mykines frá Rotterdam í Hollandi.

Lögregla lagði hald á fíkniefnin og skipti þeim út fyrir gerviefni áður en bifreiðin var afhent þeim Sigfúsi, Baldri og Y þann 24. október og færðu þeir Agurim bifreiðina í Reykjavík þar sem hann reyndi árangurslaust að fjarlægja efnin úr bifreiðinni. Daginn eftir flutti hann bifreiðina, ásamt Sigurði, að hesthúsahverfi þar sem Sigurður rétti Agurim og Elsu efnin og báru þau efnin inn í nærliggjandi hesthús.

Hefur verið sakfelldur áður

Sigurður hefur hef­ur áður verið sak­felld­ur fyr­ir stór­felld fíkni­efna- og skatta­laga­brot. 

Héraðsdóm­ur Reykja­ness dæmdi hann í 20 mánaða skil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir meiri hátt­ar skatta­laga­brot í rekstri verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins SS verks ehf. árið 2018 og var honum gert að greiða 137 millj­óna króna sekt til rík­is­sjóðs.

Árið 2019 var hann dæmd­ur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Héraðsdómi Reykja­vík­ur fyr­ir aðild að Skák­sam­bands­mál­inu svo­kallaða.

Lögregla hafði fylgst með ferðum ákærðu

Fram kemur í dómnum að málsatvik séu að mestu óumdeild og að á meðal helstu sönnunargagna séu samtímagögn með hljóðupptökum af samtölum ákærðu, myndbandsupptökum, ljósmyndum og upptökum af símtölum milli ákærðu, sem gefi glögga mynd af atburðarásinni.

Þannig aflaði lögregla m.a. dómsúrskurða sem veittu heimild til þess að koma fyrir hljóð- og myndupptökubúnaði undir Daimlerbifreiðinni og enn fremur var komið fyrir hljóðupptökubúnaði í bifreið ákærða Sigfúsar sem hann og ákærðu Baldur og Y héldu til í.

Hafði lögregla því fylgst náið með ferðum ákærðu allt frá því Daimler-bifreiðin kom til landsins 11. október 2024 og þar til þeir voru handteknir 25. október.

Niðurstöður dómsins

Sigurður Kristinsson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi og er gert að greiða þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar, samtals 9.229.714 krónur, þar með talda þrjá fjórðu hluta málsvarnarlauna skipaðs verjanda hans, Hilmars Magnússonar lögmanns, 5.674.860 króna, og þrjá fjórðu hluta annars sakarkostnaðar, 3.554.854 króna, með ákærðu Agurim, Baldri og Sigfúsi, en einn fjórði hluti sakarkostnaðar greiðist úr ríkissjóði.

Meðákærði, Agurim Xixa, hefur verið dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi og gert að greiða þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar sem er samtals 9.335.310 krónur, þar með talda þrjá fjórðu hluta málsvarnarlauna skipaðs verjanda hans, Snorra Sturlusonar lögmanns, 5.674.860 króna, auk þrjá fjórðu hluta aksturskostnaðar, 105.596 króna, og þrjá fjórðu hluta annars sakarkostnaðar, 3.554.854 króna, með ákærðu Baldri, Sigfúsi og Sigurði, en einn fjórði hluti sakarkostnaðar greiðist úr ríkissjóði.

Baldur Þór Sigurðarson hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi og gert að greiða þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar sem er samtals 9.338.140 krónur, þar með talda þrjá fjórðu hluta málsvarnarlauna skipaðs verjanda hans, Inga Freys Ágústssonar lögmanns, 5.766.930 króna, auk þrjá fjórðu hluta aksturskostnaðar, 16.356 króna, og þrjá fjórðu hluta annars sakarkostnaðar, 3.554.854 króna, með ákærðu Agurim, Sigfúsi og Sigurði, en einn fjórði hluti sakarkostnaðar greiðist úr ríkissjóði.

Sigfús Bergmann Svavarsson hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi og gert að greiða þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar, samtals 9.849.094 krónur, þar með talda þrjá fjórðu hluta málsvarnarlauna skipaðs verjanda hans, Evu Dóru Kolbrúnardóttur lögmanns, 6.294.240 króna, og þrjá fjórðu hluta annars sakarkostnaðar, 3.554.854 króna, með ákærðu Agurim, Baldri og Sigurði, en einn fjórði hluti sakarkostnaðar greiðist úr ríkissjóði.

Elsa Ruth Róbertsdóttir hefur verið dæmd í 10 mánaða fangelsi en fram kemur í dómnum að fullnustu refsingarinnar skuli frestað. Komi til afplánunar skal gæsluvarðhald dragast frá refsingunni, líkt og hjá meðákærðum. Þá er henni gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda hennar, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 3.509.820 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Maður sem nefndur er Y í dómnum hefur verið sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert