Andlát: Vilhjálmur Rafnsson

Vilhjálmur Rafnsson.
Vilhjálmur Rafnsson.

Vilhjálmur Rafnsson, læknir og prófessor emiritus, lést á líknardeild Landspítalans 4. maí síðastliðinn, 79 ára að aldri.

Vilhjálmur fæddist í Reykjavík 29. ágúst 1945. Foreldrar hans voru Hulda Vilhjálmsdóttir Olgeirsson verslunarmaður og Rafn Jónsson tannlæknir.

Vilhjálmur varð stúdent frá MR árið 1966, lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1973 og stundaði sérfræðinám í heimilis- og atvinnulækningum við Gautaborgarháskóla í Svíþjóð 1976-1981 og lauk sama ár doktorsprófi.

Vilhjálmur var mikilsvirtur vísindamaður og frumkvöðull í að rannsaka þætti sem hafa áhrif á sjúkdóma og heilsu. Hann starfaði sem læknir í Svíþjóð og hér á landi, m.a. við Sahlgrenska og Rehnströmska í Gautaborg. Hér á landi starfaði hann á Borgarspítalanum, Landspítalanum og var héraðslæknir í Ólafsvík. Hann var yfirlæknir Vinnueftirlitsins á árunum 1982-1998 og stundaði kennslu og rannsóknir í heilbrigðisfræðum við Læknadeild Háskóla Íslands frá 1987, varð prófessor í heilbrigðis- og faraldsfræði 1997 og lét af störfum 2015 vegna aldurs.

Vilhjálmur átti sæti í stjórn Félags læknanema og var formaður Félags íslenskra lækna um heilsugæslu í Svíþjóð um tveggja ára skeið. Hann átti sæti í ritstjórn Læknablaðsins og var ritstjóri þess 1993-2005. Hann var einnig ritstjóri Nordisk Medicin 1989-1997.

Eftirlifandi eiginkona Vilhjálms er Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur, f. 1946. Synir hennar og stjúpsynir Vilhjálms eru Arnór Björnsson, f. 1966, d. 1996, og Andri Steinþór Björnsson, prófessor í sálfræði við HÍ, f. 1973. Fyrri maki Vilhjálms var Anna Ingólfsdóttir, tónlistarmaður og þýðandi, f. 1946. Börn þeirra eru Linda verkefnastjóri, f. 1971, Þrúður leikkona, f. 1973, og Ingólfur klarinettuleikari, f. 1976. Barnabörnin eru fimm talsins.

Útför Vilhjálms fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 19. maí kl. 13.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert