Éljagangur og líkur á eldingum fram eftir degi

Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að búast megi við éljagangi …
Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að búast megi við éljagangi fram eftir degi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Éljagangur sem nú ríkir á öllu vestanverðu landinu kemur líklega til með að halda áfram í allan dag. Þá eru einhverjar eldingalíkur á svæðinu og hafa veðurviðvaranir verið framlengdar.

„Það er éljagangur alls staðar vestan til á landinu og heldur áfram allan daginn í dag, éljagangur eða slydduél,“ segir Hrafn Guðmundsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Elding greindist á Snæfellsnesi

Spurður hvað valdi þessum mikla kulda og úrkomu segir Hrafn að mjög óstöðugt svalt loft fylgi lægð sem nú liggur yfir landinu.

„Það nær að mynda mjög öfluga skúraklakka og það verða él og haglél í þessu, jafnvel eldingalíkur.“

Hann segir þó að ekki hafi verið mikið um eldingar hingað, aðeins ein elding hafi greinst á Snæfellsnesi í morgun.

„En það kæmi ekkert á óvart ef það myndu greinast fleiri eldingar í dag og í kvöld,“ segir Hrafn.

Gul viðvörun Veðurstofunnar fyrir Faxaflóa og Breiðafjörð hefur verið framlengd til klukkan þrjú í nótt og viðvörunin fyrir Norðurlandi vestra stendur nú til klukkan fimm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert