Funda á mánudag: „Af hverju hefur aldrei verið leitað að þýfinu“

Vilhjálmur Árnason, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Vilhjálmur Árnason, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fundað verður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á mánudag um stuld lögreglumanna á rannsóknargögnum. Svo segir Vilhjálmur Árnason, formaður nefndarinnar.

Hann segir að margar spurningar vakni um störf lögreglu og saksóknara í tengslum við stuld lögreglumanna á gögnum á eftirhrunsárum.

Meðal annars af hverju ríkissaksóknari gerði ekki frekari tilraun til þess að hafa uppi á gögnum sem grunur lék á um að hefði verið stolið eftir að sérstakur saksóknari kærði Jón Óttar Ólafsson og Guðmund Hauk Gunnarsson heitinn árið 2012.

Gögnum ekki eytt

Vilhjálmur nefnir þrennt sem m.a. þurfi að leita svara við.

„Kerfið og ríkissaksóknari hafa aldrei reynt að sækja þessi ólöglegu gögn. Af hverju hefur aldrei verið leitað að þýfinu í húsleit. Hvernig stendur á því?“ spyr Vilhjálmur.

„Af hverju átti sérstakur saksóknari allar þessar hleranir sem tengdust ekkert málunum. Af hverju var ekki búið að eyða þeim?“ spyr Vilhjálmur.

Í þriðja lagi þá þarf að draga betur í dagsljósið að þetta voru líka gögn frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem Kastljósið var að fjalla um. Þessir menn störfuðu líka þar,“ segir Vilhjálmur.

Hvað hefur ráðherra gert?

Eins þurfi að leita svara við því hjá Þorbjörgu Sigríði Guðlaugsdóttur dómsmálaráðherra hvort gripið hafi verið til aðgerða til þess að koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig og hvort kerfi sé í stakk búið til að verðveita gögn.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert