Hilmar Snorrason, sem leiddi Slysavarnaskóla sjómanna í yfir 30 ár, var í dag heiðraður fyrir ævistarf sitt á á Landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem var sett í dag á Selfossi.
Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Landsbjargar, afhenti Hilmari hluta úr stýri Sæbjargar, skólaskips, og hafði stýrið verið sett upp á sérstakan kopar-platta.
Þá fékk Hilmar viðurkenningarskjal með, og stendur á því eftirfarandi texti:
„Hér er hluti af stýri Sæbjargar, skólaskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þar stóð í brúnni og stýrði öryggismálum sjófarenda, Hilmar Snorrason. Fáir hafa haft jafn mikil áhrif í þá veru að fækka alvarlegum slysum og banaslysum á sjó og Hilmar. Það er ævistarf sem vert er að þakka fyrir. Traustum höndum hefur þú haldið um stjórnvölinn á slysavörnum sjófarenda í rúma þrjá áratugi og þannig stýrt þúsundum sjófarenda heilum í höfn. Hafðu heila þökk fyrir.“
Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu kemur fram að allir viðstaddir hafi risið úr sætum sínum og heiðrað Hilmar þegar hann tók við viðurkenningunni.
Þar kemur einnig fram að á landsþinginu á Selfossi eru nú samankomin á annaðhundrað félaga Landsbjargar, og munu þeir kjósa félaginu nýja forystu yfir helgina.