Ingibjörg: Stress hjá stjórnarflokkunum

Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er enginn fyrirvari á þessu. Hún boðar til þessa fundar með um sólarhrings fyrirvara. Maður upplifir svolítið stress hjá stjórnarflokkunum. Að þeim finnist þeir vera að missa tímalínuna til að koma öllum málum í gegn fyrir sumarfrí.“

Þetta segir Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, tók þá ákvörðun eftir fund forsætisnefndar í dag að breyta starfsáætlun þingsins og boða til þingfundar á morgun, laugardag, svo ljúka megi fyrstu umræðu um veiðigjald. 

„Það sem mér finnst kannski alvarlegast í þessu er að við settumst niður með forseta í vikunni þar sem hún talaði um mikilvægi þess að koma sölu Íslandsbanka á dagskrá.

Auðvitað er dagskrárvaldið hjá forseta en það var gert samkomulag samt sem áður um að fresta umræðu um veiðigjaldið, sem stjórnarliðar voru búnir að taka virkan þátt í líka.

Það var gert samkomulag við forseta um að salan á Íslandsbanka væri sett á dagskrá á miðvikudag, við myndum ljúka þeirri umræðu svo hægt væri að klára það mál en svo myndi veiðigjaldið halda áfram á fimmtudag.

Samkomulagið var um að þingfundi yrði lokið á fimmtudegi á miðnætti en síðan kemur í ljós í gærkvöldi að samkomulagið er brotið.“

Auðvelt að klára á mánudaginn

Ingibjörg segir það hafa verið brotið þrátt fyrir málefnalega umræðu og þrátt fyrir að rök stjórnarliða og ráðherra fyrir stuttum samráðstíma gagnvart veiðigjaldinu í samráðsgátt séu að gefa eigi málinu tíma og andrými til umfjöllunar í þinginu.

Furðar þingflokksformaður Framsóknarflokksins sig á því að svo sé verið að gagnrýna og saka stjórnarandstöðuna um málþóf þegar málið sé enn í fyrstu umræðu og hún sjálf t.d. persónulega einungis búin að flytja sína 15 mínútna ræðu í einu stærsta máli kjörtímabilsins.

„Þetta er mjög skrítið og það að forseti boði til fundar og ákveði að hafa aukafund á laugardegi, þegar það er auðvelt reikningsdæmi að sjá hversu mikil umræða er eftir miðað við fjölda þeirra sem eru í stjórnarandstöðu og hversu margir eiga ræður eftir.

Það finnst mér langt gengið því það hefði verið auðvelt að klára þessa umræðu á mánudaginn,“ segir Ingibjörg.

Mjög skrítin tölfræði

Breytingar sem þessar á starfsáætlun eru vanalega ekki gerðar fyrr en lengra er liðið á löggjafarþingið. Nú er meira en mánuður til þingfrestunar samkvæmt starfsáætlun. Hvað telur þú að ráði för?

„Ég skal ekki segja. Það er alveg augljóst að tímaramminn er skammur. Þetta mál mun alltaf þurfa a.m.k. tvær vikur í umsagnarferli og svo á eftir að fá umsagnaraðila inn á fund nefndar.

Kannski vilja þau sýna fram á að ríkisstjórnin láti verkin tala en miðað við fjölda mála sem eru inni í nefndum, fjölda mála sem á eftir að mæla fyrir og fjölda þeirra sem eru komin í gegn og orðin að lögum er þetta mjög skrítin tölfræði því allt þarf þetta að eiga sína lýðræðislegu umræðu.“

Ekki þægilegt fyrir landsbyggðarþingmenn

Ekki er algengt að þingstörf fari fram um helgar og hafði Ingibjörg sjálf gert ráðstafanir um helgina. Svona breytingar geta varla verið þægilegar fyrir ykkur landsbyggðarþingmennina?

„Nei, ég fékk varamann inn fyrir mig á nefndarfund eftir hádegi í dag því eldri borgarar á Akureyri voru búnir að boða þingmenn kjördæmisins til fundar.

Ég ætlaði svo að verja helginni með fjölskyldunni minni og manninum mínum fyrir norðan en svo kom þessi staða upp og ég þarf að bruna suður,“ segir Ingibjörg og bætir við að frekari breytingar á starfsáætlun þingsins séu í farvatninu, nefndarfundir 30. maí sem sé daginn eftir frídag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert