Lögreglunni á Suðurlandi falin rannsóknin

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur falið lögreglunni á Suðurlandi að rannsaka …
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur falið lögreglunni á Suðurlandi að rannsaka meint brot vegna gagnastuldar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkissaksóknari hefur falið lögreglunni á Suðurlandi að rannsaka meint brot er varða umfangsmikinn gagnastuld úr kerfum sérstaks saksóknara fyrir rúmum áratug.

RÚV greinir frá greindi fyrst frá en Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfestir þetta í skriflegu svari til mbl.is.

Ríkissaksóknari fari ekki með rannsókn sakamála og því hafi þar til bæru embætti verið falin rannsóknin

Áður hafði komið fram í yfirlýsingu frá ríkissaksóknara, í tengslum við umfjöllun RÚV, að tvö erindi hefðu borist embættinu vegna umfjöllunar um stolnu gögnin.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert