„Þeir eru að stóla inn á það að fólk bara borgi. Það er verið að lauma inn þessum smásektum og verið að reyna að hanka fólk á góðmennsku í þessu.“
Þetta segir Atli Már Jónsson í samtali við mbl.is en Atla barst reikningur frá Isavia vegna þess að hann hafði verið 90 sekúndum of lengi að athafna sig í „rennunni“ við brottfararinnganginn við Keflavíkurflugvöll, þar sem gjaldfrelsi ríkir fyrstu fimm mínúturnar.
„Ég er rólyndismaður en þegar vegið er að mér verð ég mjög reiður og mér finnst þetta bara vera glæpastarfsemi. Ég skil ekki svona lagað, þetta býr bara til leiðindi,“ segir Atli.
Þeir feðgar voru að fara í flug og það var óvanalega mikil umferð enda háannatími. Atli náði að sögn að troða sér framar í röðina og var því fljótari í gegn en hann annars hefði verið.
„Við feðgarnir förum svo út og konan tekur bílinn í bæinn. Svo gerist það mánuði seinna að það kemur reikningur frá Isavia upp á 1.990 krónur vegna 6 mínútna stopps þarna í rennunni.
Ég hringi suður eftir og spyr hvað sé í gangi. Þá er mér sagt að hámarkið sé 5 mínútur og það sé rukkað eftir það. Ég spyr hvort menn séu ekkert að grínast með það að rukka fólk af því það var einni mínútu umfram þessar fimm.
Þá sagði starfsmaður Isavia að um væri að ræða eina mínútu og þrjátíu sekúndur. Þá fauk í mig og ég tapaði mér. Greyið strákurinn var auðvitað ekkert sekur í þessu en þú sprautar ekki eld á mann sem er reiður fyrir,“ segir Atli frá.
Segist hann hafa spurt hvort um eitthvað djók væri að ræða því hann hefði ekkert getað gert til að koma sér hraðar í gegn. „Ég meina, við keyrðum bara, lögðum, tókum úr bílnum og hún fór.“
Atli bað um að fá að ræða við yfirmann, sem var á fundi, svo honum var gefið samband við vaktstjóra. Vaktstjórinn sagði að þetta væri bara svona, verið væri að reyna að beina fólki í önnur stæði. Stæði aðeins lengra í burtu þar sem megi leggja í kortér.
„Ég segi þá að það þurfi að útskýra það fyrir fólki og það þurfi að vera hægt að fara í gegn á þessum fimm mínútum. Þá sagði hann að þetta væri bara svona og svo ef fólk kvarti fari þeir í myndavélakerfið og ef fólk hafi rétt fyrir sér verði reikningarnir felldir niður.
Ég spurði hvort ekki væri fylgst með í mikilli umferð og tíminn lengdur. Ég er ekki enn búinn að fá svar og ekki hefur þetta enn verið fellt niður. Ég sendi ítrekun áðan en hef ekki enn fengið svar,“ segir Atli og bendir á að ef fólk leggi bílum sínum í rennunni borgi það 50 þúsund krónur fyrir sólarhringinn.
Spurður hvað honum finnist um aðferðafræði Isavia ef málinu muni ljúka með niðurfellingu reikningsins, segir Atli að samt sem áður finnist honum hún alveg glötuð.
„Ef þetta væru tíu mínútur þannig að væri hægt að taka slakann eða þeir myndu bara taka mynd af númerinu þegar ég keyri inn í þar sem stoppistöðin er en ekki þegar ég kem í beygjuna væri það annað mál. Þeir þurfa náttúrulega bara að stilla þetta af.“
Fyrir rúmu ári síðan lenti hann í svipuðu atviki í tengslum við almennu stæðin, þar sem farþegar skilja bíla sína eftir á meðan þeir eru á ferðalagi.
„Ég fékk rangar upplýsingar um lendingartíma sem varð til þess að ég fór klukkutíma og kortér fram yfir tímann sem ég ætlaði að afleggja bílnum.
Ég var úti í fjóra daga en af því að ég sagði að ég myndi koma klukkan 7 en fara klukkan 23, sem sagt vera í þrjá og hálfan dag, var ég látinn borga fyrir fimm daga fyrir að fara rúman klukkutíma fram yfir þennan þrjá og hálfan dag.
Þarna borgar þú einhvern átta þúsund kall fyrir fjóra daga og þarna er engin þjónusta og ekkert sem beinir þér að lausum stæðum til dæmis,“ segir Atli í forundran.
Hann reyndi að malda í móinn en allt kom fyrir ekki, sektinni var ekki haggað.