Náist samkomulag verður loksins farið í útboð

Viljayfirlýsing vegna byggingu nýs meðferðarheimilis var undirrituð árið 2018.
Viljayfirlýsing vegna byggingu nýs meðferðarheimilis var undirrituð árið 2018. Samsett mynd/Arnþór/Karítas

Um miðjan mars átti mennta- og barnamálaráðuneytið samtal við bæjarstjóra Garðabæjar þar sem rætt var um mikilvægi þess að samningsviðræðum yrði haldið áfram á milli fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Garðabæjar til að hægt verði að reisa fyrirhugað meðferðarheimili í Garðabæ fyrir börn með fjölþættan vanda. 

Þá ræddi mennta- og barnamálaráðuneytið jafnframt við fjármála- og efnahagsráðuneytið nýlega um að það tæki að nýju upp viðræður við Garðabæ um málið.

Þetta kemur fram í svari mennta- og barnamálaráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is.

„Þegar og ef samkomulag næst milli fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Garðabæjar um lóðina þá er mennta- og barnamálaráðuneytið reiðubúið að leita til Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna vegna útboðs á grundvelli þeirrar undirbúningsvinnu sem fór fram í ráðuneytinu í aðdraganda samningsviðræðna,“ segir í svarinu.

Engin vinna átt sér stað frá árinu 2023

Samtal á milli Garðabæjar og fjármála- og efnahagsráðuneytisins strandaði á ágreiningi um gatnagerðargjöld síðla árs 2023 og engin vinna hefur átt sér stað varðandi samning um úthlutun lóðar undir meðferðarheimilið í ráðuneytinu frá þeim tíma, að því er ráðuneytið staðfesti við mbl.is í mars. Þrátt fyrir að Garðabær hafi í tvígang ýtt við fulltrúum ráðuneytisins og óskað svara, sem ekki bárust.

Í ljós kom að fjármálaráðuneytið var upplýst um það af hálfu mennta- og barnamálaráðuneytisins í nóvember 2023 að til skoðunar væri að færa verkefnið yfir í Skálatún í Mosfellsbæ vegna seinkunar á lóðaúthlutun í Garðabæ og vegna þess að það væri talið hagkvæmara að standa að slíkri uppbyggingu í Mosfellsbæ. Sveitarfélagið Garðabær var hins vegar ekki upplýst um þær hugmyndir og stóð Almar Guðmundsson bæjarstjóri í þeirri trú að málið væri í farvegi hjá báðum ráðuneytunum.

Það var ekki fyrr en farið var að óska eftir upplýsingum frá ráðuneytunum um stöðuna á meðferðarheimilinu og mbl.is fjallaði um málið að samtöl fóru aftur af stað á milli sveitarfélagsins og ríkisins á nýjan leik.

Í samtali við mbl.is fyrr í vikunni sagðist Almar vera vongóður um að það tækist að leysa ágreining um gatnagerðargjöld svo hægt yrði að ráðast í þetta mikilvæga verkefni. Hann hefði átt í samtölum við bæði ráðuneytin og verið mætt af skilningi.

Vilja skilgreiningu á eðlilegum kostnaði

Í tölvupóstum sem mbl.is fékk afhenta frá mennta- og barnamálaráðuneytinu kemur fram að Almar hafi óskað eftir því við verkefnastjóra hjá ráðuneytinu að sveitarfélagið fengi staðfestingu á því að ráðuneytin tvö væru tilbúin að fallast á eðlilegan kostnað vegna gatnagerðar sem tilheyrir meðferðarheimilinu.

Í póstinum ítrekaði Almar að lóðin og skipulag hennar væri löngu klárt. Það þyrfti bara að klára úthlutunarsamning. Sagðist hann vænta þess að afstaða ríkisins væri önnur en árið 2023 þegar málið stoppaði gagnvart sveitarfélaginu.

Í svari verkefnastjórans sem barst um miðjan apríl sagðist hann þurfa að ræða við sérfræðinga í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þá kæmi í ljós hvaða skilgreining þyrfti að vera til staðar á gatnagerðarkostnaði svo það væri ásættanlegt af hálfu ríkissjóðs og án fordæmisgildis.

Málið hefur velkst um árum saman

Um er að ræða meðferðarheimili sem hefur verið á teikniborðinu frá árinu 2015 en árið 2018 var undirrituð viljayfirlýsing þess efnis að það yrði reist í Garðabæ. Vonir stóðu til að framkvæmdir gætu hafist árið 2020 og heimilið tilbúið sama ár. Það varð hins vegar ekki raunin.

Í kjölfar viljayfirlýsingarinnar var hafist handa við skipulag svæðisins af hálfu Garðabæjar og vinnu við það lokið um tveimur árum síðar. Eftir það velktist málið hins vegar um á milli ráðuneyta og stofnana og fjölmargir tölvupóstar voru sendir án þess að nokkur framvinda yrði, líkt og mbl.is hefur greint frá.

Málið strandaði svo í fjármálaráðuneytinu árið 2023 þegar gerðar voru athugasemdir við mikinn kostnað við gatnagerð og byggingarréttargjöld, sem er tilkominn vegna þess að svæðið er óbyggt og ráðast þarf í gatnagerð frá grunni. Úr varð ágreiningur um hver skyldi standa straum af þeim kostnaði og hefur hann enn ekki verið leystur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert