Nýtt fyrirkomulag bílastæðamála við Keflavíkurflugvöll, sem tók gildi í mars, var kynnt mjög vel. Isavia fór í auglýsingaherferð og allir fjölmiðlar fengu upplýsingar um breytingarnar að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia.
mbl.is fjallaði í kvöld um baráttu manns við Isavia, sem hafði verið 90 sekúndum of lengi í „rennunni“ við brottfararinngang Keflavíkurflugvallar á háannatíma og fengið 1.990 króna sekt fyrir.
Guðjón segir í samtali við mbl.is að þegar málið hafi verið kynnt hafi verið farið yfir röksemdina fyrir breytingunum og mótvægisaðgerðir kynntar.
Þær hafi meðal annars falist í því að að auka gjaldfrjálsa tímann komumegin í P2-bílastæðunum úr 15 mínútum í 30, til þess að þeir sem þurfi mögulega lengri tíma en fimm mínútur geti þá nýtt þau stæði til að taka á móti eða skutlað farþegum.
Þá bendir hann á að fyrstu 15 mínúturnar í P1-bílastæðunum séu gjaldfrjálsar og því tilvalið fyrir þá sem þurfa meira en fimm mínútur til að athafna sig að nota þau.
Í tilkynningu frá Isavia í febrúar segir að „rennan“ sé ætluð þeim sem þurfi að aka upp að flugstöðinni og stöðva í stutta stund til þess að hleypa út farþegum, losa farangur eða annan farm. Nokkuð hafi verið um að bílstjórar hafi lagt bílum í „rennunni“ í lengri tíma, sem stífli flæði umferðar og geti heft aðgengi farþega og viðbragðsaðila.
Segir Guðjón yfir 80% þeirra sem noti „rennuna“ þurfi innan við fimm mínútur til að athafna sig á svæðinu, samkvæmt niðurstöðum athugunar á notkun „rennunnar“ yfir rúmlega mánaðar tímabil. 8% bíla þurftu þó á bilinu 16-20 mínútur.
Til að sporna gegn því og stuðla að bættu flæði um „rennuna“ var tekið upp gjald á þau ökutæki sem eru lengur en fimm mínútur að athafna sig á svæðinu.
Guðjón segir að miðgildisnotkunin samkvæmt athuguninni hafi ekki náð þremur mínútum, sem sýni að fimm mínútur þyki eðlileg tímamörk.
Hann segir breytingarnar hafa verið mjög vel undirbúnar til að finna rétta punktinn og aðaltilganginn að fá fólk til að hætta að leggja bílunum sínum á þessu tiltekna svæði sem margir fara um.
„Við leggjum áherslu á að ef fólk hefur einhverjar athugasemdir við þá þjónustu sem það greiðir fyrir á Keflavíkurflugvelli vill Isavia heyra af því.
Hægt er að hafa samband við bílastæðaþjónustuna á Keflavíkurflugvelli en á vef Isavia eru ítarlegar upplýsingar um hana, meðal annars um gjaldtöku í „rennunni“.
Við biðjum fólk að hafa samband ef það hefur eitthvað við gjaldtöku í einhverjum tilvikum að athuga. Öll mál eru skoðuð og við tökum vel á móti öllum sem vilja ræða við okkur og gera athugasemdir,“ segir Guðjón.