Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir í viðtali við Morgunblaðið að afar mikilvægt sé að rannsaka lekamálið allt og sjá til þess að annað eins geti ekki gerst aftur.
Hún segir að nú þegar sé málið komið í eðlilegan farveg í kerfinu. Spurð hvort eðlilegt sé að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkisaksóknari hafi mál sem að hluta varði eigin embættisfærslu til skoðunar, tekur ráðherra undir að það sé athugunarefni.
„Já, það er auðvitað eitthvað sem hún þarf að skoða, hún þarf að svara með tilliti til þess hvað er undir í þessu máli.“
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður, sem þekkir vel til rannsókna hrunmála, telur einsýnt að bæði héraðssaksóknari og ríkissaksóknari þurfi að segja af sér.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.