Skellt í lás í verslun Pennans Eymundsson við Laugaveg

Verslun Pennans Eymundsson við Laugaveg.
Verslun Pennans Eymundsson við Laugaveg. Ljósmynd/Aðsend

Verslun Pennans Eymundsson á Laugavegi verður skellt í lás klukkan 18 í dag fyrir fullt og allt en Penninn ehf. hefur starfrækt verslun Pennans Eymundssonar á Laugavegi 77 frá árinu 2017.

„Leigusamningurinn er runninn út og það stendur til að breyta efri hæðum hússins í íbúðir,“ segir Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans ehf. „Við treystum okkur ekki til að reka verslunina meðan á framkvæmdum stendur,“ er haft eftir Ingimar í tilkynningu frá Pennanum.

Opna á Selfossi

Í tilkynningunni kemur fram að þegar versluninni við Laugaveg verður lokað verður innréttingum og vörum ekið á Selfoss.

„Við erum að opna stærri og glæsilegri verslun á Selfossi á næstu vikum. Búðin á Selfossi verður 350 fermetrar í nýju húsi við Larsenstræti sem er afar öflugt verslunarsvæði,“ segir Ingimar.

Þá hafa verslanir Pennans Eymundsson við Skólavörðustíg og í Austurstræti verið endurskipulagðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert