Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ökumann í hverfi 105 sem ók á 88 km/klst hraða á götu, þar sem hámarkshraðinn var einungis 50 km/klst. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Ekki er farið nánari orðum um atvikið, en í sektarreiknivél lögreglunnar má reikna út að sekt fyrir slíkan hraðakstur sé 60.000 krónur, og sömuleiðis bætast 2 punktar við ökumannsferil viðkomandi ökumanns.