Vill 7-8 ára fangelsi í Vopnafjarðarmáli

Úr dómsal í Héraðsdómi Austurlands í vikunni þegar aðalmeðferð í …
Úr dómsal í Héraðsdómi Austurlands í vikunni þegar aðalmeðferð í Vopnafjarðarmálinu hófs. Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson

Saksóknari í Vopnafjarðarmálinu svokallaða fer fram á 7-8 ára fangelsi yfir Jóni Þóri Dagbjartssyni, sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Þetta kom fram við málflutningi saksóknara í dag, en þetta er þriðji og síðasti dagur aðalmeðferðar málsins fyrir Héraðsdómi Austurlands.

Rúv greinir frá kröfu saksóknara, en málið vakti mikla athygli eftir að konan, Hafdís Bára Óskarsdóttir, kom fram í Kastljósi og sagði frá málsatvikum. Var meðal annars upplýst að árásin hafi átt sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Hafdísi var hafnað um nálgunarbann á Jón.

Jóni er í málinu gefið að sök að hafa meðal ann­ars veist að Haf­dísi með rúllu­bagga­teini og notað hann til að reyna að stinga hana í kviðinn, ýta við henni þar til hún féll til jarðar og síðan notað tein­inn til að þrengja að hálsi henn­ar.

Jón neitaði sök um brot í nánu sambandi fyrir dómi. Varðandi tilraunina til manndráps vísaði Jón til þess að hann hefði farið í geðrof og gat lítið upplýst um verknaðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert