WEGo-þjóðirnar hlutu Velsældarverðlaunin

Halla Tómasdóttir veitir Gary Gillispie Velsældarverðlaunin.
Halla Tómasdóttir veitir Gary Gillispie Velsældarverðlaunin. Ljósmynd/Pétur Fjeldsted

Velsældarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn á Velsældarþinginu í Hörpu. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er verndari Velsældarþingsins og afhenti hún fulltrúum WEGo-þjóðanna verðlaunin. Gary Gillespie tók við verðlaununum fyrir hönd ríkisstjórna velsældarhagkerfa, en hann er yfirhagfræðingur skosku heimastjórnarinnar. 

„Verðlaunin eru veitt aðilum sem hafa stuðlað að árangursríku framlagi til velsældar í samfélögum sínum og í heiminum. Velsældarverðlaunin eru veitt í anda þeirrar sýnar að hvetja til lausnamiðaðrar og manngæskulegrar nálgunar sem stuðlar að sjálfbærni og umbreytingu í átt að velsældarhagkerfi,” segir í fréttatilkynningu Velsældarþingsins.

WEGo stendur fyrir Wellbeing Economy Governments og eru WEGo-þjóðirnar sex talsins; Ísland, Finnland, Skotland, Kanada, Nýja Sjáland og Wales og vinna þær saman að því að þróa hagkerfi sem setja velsæld í forgang.

Þessi ríki eiga það sameiginlegt að deila svipaðri stefnumótun, reynslu og mælikvörðum sem miða að því að tryggja að efnahagsstefna stuðli að velferð fólks og náttúru en ekki eingöngu hagvexti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert