„Erum ekki einu sinni komin á byrjunarreit“

Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri á Suðurlandi.
Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri á Suðurlandi. mbl.is

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur falið lögreglunni á Suðurlandi að rannsaka meint brot er varða umfangsmikinn gagnastuld úr kerfum sérstaks saksóknara fyrir rúmum áratug.

Sigríður staðfesti þetta í skriflegu svari til mbl.is í gær. Ríkissaksóknari fari ekki með rannsókn sakamála og því hafi þar til bæru embætti verið falin rannsókn.

„Ég fékk bréf frá ríkissaksóknara í gær þar sem mér var falin þessi rannsókn,“ segir Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.

Hann segir að vinna við rannsókn málsins sé ekki komin af stað en hún muni hefjast strax eftir helgi.

„Við þurfum að fá öll þau gögn sem ríkissaksóknari hefur í þessu máli. Þau eru ekki komin til okkar svo við erum ekki einu sinni komin á byrjunarreit og getum ekki hafið rannsóknina fyrr en þau berast,“ segir Grímur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert