Fundi Alþingis var frestað nú á öðrum tímanum í dag fram til mánudags en þingfundur hófst klukkan 10 í morgun þar sem framhaldið var á fyrstu umræðu um frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjöld. Fyrstu umræðu um málið er lokið.
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til fyrir hönd stjórnarandstöðunnar að frumvarpið gengi til efnahags- og viðskiptanefndar í stað atvinnuveganefndar. Lagði hún til að atkvæðagreiðsla þess efnis færi fram í samræmi við þingskapalög. Svo varð ekki og fer atkvæðagreiðslan fram á mánudaginn.
„Það hefur greinilega komið í ljós að hin mikla verkstjórn sem ríkisstjórnin vill kalla sig hefur greinilega ekki verið með neina verkmenn í húsinu og treysti sér ekki til að ljúka málinu núna sem henni hefði verið í lófa lagið að gera. Svona er verklagið í þessari verkstjórn,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, við mbl.is.
Sigríður segir að þingmenn hafi tekið sig af mælendaskrá og hafi þar með gefið kost á að ljúka umræðunum en ríkisstjórnin hafi ekki treyst sér til þess. Hún segir að á mánudaginn fari fram atkvæðagreiðsla um það í hvaða nefnd málið fari.
„Þar sem þingfundur var boðaður í dag hefði maður haldið að þingmenn stjórnarflokkanna hefðu verið betur undirbúnir að ljúka málinu í dag. Til þess vorum við mætt,“ segir Sigríður.