Ökufantur tók á rás undan lögreglu

Nokkrir ökumenn voru handteknir í dag.
Nokkrir ökumenn voru handteknir í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögregla þurfti að veita ökumanni eftirför eftir að hafa reynt að stöðva hann fyrir hraðakstur í Árbænum í dag. Er ökumaðurinn stöðvaði loks bifreiðina reyndi hann að hlaupa undan lögreglunni.

Lögreglan hafði þó fljótlega upp á manninum sem var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Þetta segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 5-17 í dag.

Mikið um umferðalagabrot

Kemur þar fram að tveir til viðbótar voru handteknir í Árbænum í dag sökum gruns um akstur undir áhrifum áfengis.

Þar var einnig ökumaður stöðvaður þar sem hann ók á 114 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.

Þá var ökumaður stöðvaður í Breiðholti þar sem hann ók á 111 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.

Tilkynnt um innbrot og þjófnað í Hlíðunum

Í Hafnarfirði var tilkynnt um þjófnað úr verslun og var málið afgreitt með vettvangsskýrslu.

Í Hlíðarhverfi Reykjavíkur var tilkynnt um innbrot og þjófnað og er málið í rannsókn.

Þar var einnig ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var ökumaðurinn handtekinn og fluttur á lögreglustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert