Ökumaður handtekinn eftir bílveltu

Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og var hann grunaður um …
Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og var hann grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti útkalli þar sem ökumaður hafði velt bifreið sinni.

Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og var hann grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.

Var farið með hann á bráðamóttöku til skoðunar og var hann að skoðuninni lokinni vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins, að því er segir í dagbók lögreglu í morgun.

Líkamsárásir í heimahúsum

Þar segir einnig frá húsbroti og líkamsárás í heimahúsi. Meintur gerandi var farinn af vettvangi er lögreglu bar að garði.

Tilkynnt var um aðra líkamsárás í heimahúsi og var þar einn handtekinn og vistaður í fangaklefa, að því er segir í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert