Fulltrúar Íslands funduðu í fyrradag með fulltrúum Bandaríkjanna á árlegum samráðsfundi ríkjanna tveggja um öryggis- og varnarmál í Washington-borg. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að öflug tvíhliða varnarsamvinna ríkjanna og staða alþjóðaöryggismála hafi verið meðal helstu umræðuefna á fundinum.
Kynnti íslenska sendinefndin þar jafnframt ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að setja varnar- og öryggismál í öndvegi sem og yfirstandandi vinnu við mótun stefnu í varnar- og öryggismálum fyrir Ísland.
Á fundinum áréttuðu ríkin tvö mikilvægi gagnkvæmra varnarskuldbindinga og vaxandi samstarfs um eftirlit og aðgerðir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Þá segir í tilkynningunni að rætt hafi verið um samvinnu ríkjanna í tengslum við kafbátaleit, þjónustuheimsóknir bandarískra kafbáta, uppbyggingu á varnarinnviðum, varnaræfingar, áfallaþol og netöryggi. Aukinn viðbúnaður og eftirlit á Norður-Atlantshafi tryggir sameiginlega öryggishagsmuni ríkjanna og annarra bandalagsríkja. Þá áttu fulltrúar Íslands einnig sérstaka fundi um málefni Mið-Austurlanda og varnarmál.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.