Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis er nú með til skoðunar hvort stjórnvöld fari að lögum um póstþjónustu og hvort verið sé að niðurgreiða samkeppni Íslandspósts við einkaaðila á markaði.
Segir Vilhjálmur Árnason formaður nefndarinnar að svo virðist sem verið sé að niðurgreiða annað en kostnað vegna alþjónustukvaðarinnar. Það dragi bæði úr samkeppni og möguleikum einkaaðila til að veita betri þjónustu um land allt og vinni þannig gegn markmiðum laga.
„Samkeppnisaðilar Póstsins á markaði hafa lengi kvartað undan því að ríkið fari ekki að póstlögum og niðurgreiði í gegnum alþjónustukvöð Íslandspósts þjónustu sína á samkeppnismarkaði. Þetta varð til þess að Alþingi bað ríkisendurskoðanda um að gera úttekt á málinu. Ríkisendurskoðandi lét í kjölfarið gera frumathugun en ekki fulla úttekt og sagði eðlilega að málum staðið. Síðan komust samkeppnisaðilarnir að því að ríkisendurskoðandi er jafnframt endurskoðandi Íslandspósts og veitti fyrirtækinu ráðgjöf, þannig að hann var mögulega að endurskoða sjálfan sig,“ segir Vilhjálmur. Hann nefnir að leitað yrði eftir sjónarmiðum ríkisendurskoðanda á því máli.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.