Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til fyrir hönd stjórnarandstöðunnar á Alþingi í dag að frumvarp til laga um breytingu á lögum til veiðigjalda gangi til efnahags- og viðskiptanefndar í stað atvinnuveganefndar að lokinni fyrstu umræðu.
Lagði hún til að atkvæðagreiðsla þess efnis færi fram í samræmi við þingskapalög.
Boðað var til fundar á Alþingi klukkan 10 í morgun þar sem fyrstu umræðu um frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjöld var framhaldið.
„Þó að pólitík þessarar ríkisstjórnar sé ansi mikil í frösum og mikið tal hennar um einhvers konar leiðréttingu, þó það sé málum blandið hvað sé verið að leiðrétta, þá er málið augljóslega um skatta enda segir það mjög skýrt í frumvarpinu sjálfu,“ segir Hildur í samtali við mbl.is.
Hún telur rétt að málið fari frekar til efnahags- og viðskiptanefndar sem sé sú nefnd sem hafi með skattamál ríkisins að gera.
Hildur segir að þegar fyrstu umræðu um frumvarp atvinnuvegaráðherra lýkur á Alþingi í dag leggi hún til að atkvæðagreiða fari fram í samræmi við 39. gr. þingskapalaga.