Vill setja velferð í forgang hjá UNESCO

Gabriela Ramos, frambjóðandi til framkvæmdastjóra UNESCO.
Gabriela Ramos, frambjóðandi til framkvæmdastjóra UNESCO. mbl.is/Karítas

Gabriela Ramos, frambjóðandi til stöðu aðalframkvæmdarstjóra UNESCO, telur mikilvægt að fjárfesta í menntun og vísindum vegna hraðra breytinga í heiminum. UNESCO, menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, vinnur að því að efla frið, sjálfbærni og mannréttindi með alþjóðlegu samstarfi á sviði menntunar, vísinda og menningar.

„Menntun skiptir gríðarlega miklu máli til að öðlast skilning á nýrri heimsmynd og sem sameiningarafl. Við þurfum að tryggja að menning sé ekki aukaatriði, við þurfum að fjárfesta í menningu og búa þannig til skapandi hagkerfi. Menning hefur gríðarleg áhrif á samfélög og velferð fólks”.

Fjárfesta þurfi í vísindum

„Við lifum í heimi sem er að breytast afskaplega hratt hvað varðar tæknilegar byltingar og gervigreind. Við þurfum því að fjárfesta meira í vísindum og er það eitthvað sem við höfum verið að gera hjá UNESCO. Við þurfum að nota tæknina til að hjálpa okkur að byggja upp sjálfbæra framtíð,” segir Gabriela.

„UNESCO þarf að vera virkur þátttakandi og við þurfum að koma með lausnir. UNESCO þarf að vinna með aðildarríkjum til að hafa raunveruleg áhrif. Við þurfum að gera ákall til landa um að halda áfram að vinna að því að stuðla að friði,” segir Gabriela.

Gabriela Ramos er í framboði Mexíkó til aðalframkvæmdastjóra UNESCO. Eins og er starfar hún sem aðstoðarframkvæmdastjóri félagsvísinda- og mannfræðideildar innan UNESCO. Gabriela segist ætla að setja velferð ofar á dagskrána hljóti hún stöðuna. Þrír eru í framboði til framkvæmdastjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert