Fundar með úkraínska starfsbróður sínum á morgun

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég er bara að fara að bjóða fram aðstoð þegar kemur að jarðhitarannsóknum, aðstoð íslenskra sérfræðingar,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sem fundar á morgun með orkumálaráðherra Úkraínu.

Hann er nú staddur á fundi í Varsjá um orkumál.

„Það verður mikilvægur fundur. Rússar hafa auðvitað verið að beina sérstaklega spjótum að orkuinnviðum í Úkraínu og ekki að ástæðulausu. Það er algjör líflína.“

Viljum flytja þekkingu út

Hann segir samstarfið milli Íslands og Úkraínu í orkumálum hafa gefist vel hingað til. 

„Við viljum fyrir alla muni flytja út þekkingu Íslendinga á sviði jarðhitanýtingar og sérstaklega fyrir þjóð eins og Úkraínu sem á við ofurefli að etja og þarf ekki bara að grípa til skyndiaðgerða til þess að verja orkuöryggi, og þar af leiðandi alla grunnstarfsemi í landinu, heldur þarf að byggja upp orkuinnviði til framtíðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert