Grímur vék af fundinum

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. mbl.is/Karítas

Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefn­d Alþing­is fundaði í Smiðju Alþing­is í dag. Meðal mála á dagskrá var gagnaleki frá sér­stök­um sak­sókn­ara fyrir rúmum áratug síðan.

Grím­ur Gríms­son, þingmaður Viðreisn­ar og nefnd­armaður, sótti fyrri hluta fundarins en hann var sam­starfsmaður Jóns Ótt­ars Ólafssonar og Guðmund­ar Hauks Gunnarssonar, stofnenda PPP, hjá embætti sér­staks sak­sókn­ara á sín­um tíma.

Í desember 2011 störfuðu Guðmundur Haukur og Jón Óttar sam­hliða fyr­ir embættið og ný­stofnað fyr­ir­tæki sitt, að því er virðist að sömu verk­efn­um.

Eft­ir að grun­ur vaknaði um að þeir hefðu stolið gögn­um hjá embætt­inu og rofið þagn­ar­skyldu voru þeir kærðir til rík­is­sak­sókn­ara en rann­sókn­in var síðar lát­in niður falla.

Mat hæfi sitt fagmannlega

Eins og fyrr segir sótti Grímur fund stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefn­dar í dag en þegar kom að því að ræða PPP og gagnalekann vék hann af fundi og lét bóka það sérstaklega, að sögn Vilhjálms Árnasonar, formanns nefndarinnar.

„Það er hans að meta hæfi sitt og hann gerði það fagmannlega,“ segir Vilhjálmur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert