Fyrirhugaður kláfur án fordæma hér á landi

Fyrirtækið Eyrarkláfur áformar að setja upp kláf sem gangi frá …
Fyrirtækið Eyrarkláfur áformar að setja upp kláf sem gangi frá þéttbýlinu á Ísafirði upp á Eyrarfjall ofan við bæinn sem er um 700 m hátt. mbl.is/Sigurður Bogi

Skipulagsstofnun segir að kláfur sem fyrirtækið Eyrarkláfur ehf. áformar að leggja upp á Eyrarfjall ofan Ísafjarðar og byggingar á toppi fjallsins séu án fordæma hér landi.

Stofnunin hefur veitt álit á umhverfismatsáætlun Eyrarkláfs um framkvæmdirnar og segir að þær verði að langmestu leyti á óröskuðu svæði í hlíðum Eyrarfjalls og uppi á fjallinu í mikilli nálægð við þéttbýlið á Ísafirði.

Leggur Skipulagsstofnun áherslu á mikilvægi þess að umhverfismat feli í sér að birtar verði ljósmyndir frá tilteknum sjónarhornum sem sýni núverandi aðstæður á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði og síðan verði fyrirhugaðar framkvæmdir færðar inn á ljósmyndirnar til að freista þess að sýna ásýndarbreytingar með tilkomu framkvæmdanna. „Stofnunin hefur ekki góða reynslu af svokölluðum tölvugerðum þrívíddarmyndum,“ segir síðan í álitinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert