Ungfrú Ísland fær níu

Birna Pétursdóttir er tilnefnd sem leikkona ársins í aðalhlutverki í …
Birna Pétursdóttir er tilnefnd sem leikkona ársins í aðalhlutverki í uppfærlu Borgarleikhússins á Ungfrú Ísland, en sýningin hlýtur flestar tilnefningar í ár eða níu talsins. Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir

Ungfrú Ísland eftir Bjarna Jónsson í samvinnu við Grétu Kristínu Ómarsdóttur, leikgerð upp úr skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, í leikstjórn Grétu Kristínar í sviðsetningu Borgarleikhússins hlýtur flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistaverðlaunanna, í ár eða níu talsins. Næstflestar tilnefningar, eða sjö talsins, hlýtur Hringir Orfeusar og annað slúður eftir Ernu Ómarsdóttur í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Sýslumaður dauðans eftir Birni Jón Sigurðsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar í sviðsetningu Borgarleikhússins. Þetta var upplýst í Tjarnarbíói rétt í þessu. Gríman verður afhent í Borgarleikhúsinu 10. júní og sýnd beint á RÚV.

Í ár voru 65 sviðsverk og eitt útvarpsverk, alls 66 verk, skráð af leikhúsum og sviðslistahópum í Grímuna; 12 barnaleikhúsverk, átta óperur, þar af sex nýjar íslenskar, 13 dansverk og sjö söngleikir. Tólf manna valnefnd hefur fjallað um allar sýningarnar og valið fimm einstaklinga, teymi eða verk í hverjum verðlaunaflokki í forvali Grímunnar er hljóta tilnefningu. Tilnefnt er í 17 verðlaunaflokkum, en auk þess eru heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands veitt einstaklingi sem þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista á Íslandi.

Hringir Orfeusar og annað slúður eftir Ernu Ómarsdóttur hlýtur næstflestar …
Hringir Orfeusar og annað slúður eftir Ernu Ómarsdóttur hlýtur næstflestar tilnefningar eða sjö talsins. Ljósmynd/Owen Fiene

Sýning ársins 

  • Hringir Orfeusar og annað slúður
  • Innkaupapokinn 
  • Köttur á heitu blikkþak
  • Sýslumaður dauðans 
  • Ungfrú Ísland 

Barnasýning ársins 

  • Bangsímon
  • Blómin á þakinu
  • Ef ég væri grágæs
  • Jóla Lóla
  • Orri óstöðvandi – ævintýri Orra óstöðvandi og Möggu Messi
Sýslumaður dauðans hlýtur næstflestar tilnefningar eða sjö talsins.
Sýslumaður dauðans hlýtur næstflestar tilnefningar eða sjö talsins. Ljósmynd/Svenni Speight

Leikrit ársins

  • Heim eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur
  • Innkaupapokinn eftir Elísabetu Jökulsdóttir og Kriðpleir
  • Skeljar eftir Magnús Thorlacius
  • Sýslumaður dauðans eftir Birni Jón Sigurðsson
  • Ungfrú Ísland eftir Bjarna Jónsson í samvinnu við Grétu Kristínu Ómarsdóttur, leikgerð upp úr skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur

Leikstjóri ársins

  • Gréta Kristín Ómarsdóttir – Ungfrú Ísland
  • Kriðpleir – Innkaupapokinn
  • Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir – Óperan hundrað þúsund 
  • Stefán Jónsson – Sýslumaður dauðans
  • Þorleifur Örn Arnarsson – Köttur á heitu blikkþaki
Köttur á heitu blikkþaki hlýtur fimm tilnefningar. Bæði Ásthildur Úa …
Köttur á heitu blikkþaki hlýtur fimm tilnefningar. Bæði Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Hilmir Snær Guðnason eru tilnefnd fyrir bestan leik í aðalhlutverki. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Danshöfundur ársins

  • Ásrún Magnúsdóttir – Dúettar
  • Bára Sigfúsdóttir – Flökt 
  • Erna Ómarsdóttir – Hringir Orfeusar og annað slúður
  • Hooman Sharifi – While in battle I'm free, never free to rest 
  • Margrét Sara Guðjónsdóttir – Órætt algleymi

Leikmynd ársins

  • Axel Hallkell Jóhannesson – Fjallabak 
  • Gabríela Friðriksdóttir – Hringir Orfeusar og annað slúður
  • Kristinn Arnar Sigurðsson og Brynja Björnsdóttir – Ungfrú Ísland
  • Mirek Kaczmarek – Sýslumaður dauðans
  • Tinna Ottesen – Flökt

Búningar ársins

  • Andri Unnarson – Brúðkaup Fígarós
  • Filippía I. Elísdóttir – Ungfrú Ísland
  • Guðný Hrund Sigurðardóttir – Árið án sumars 
  • Guðný Hrund Sigurðardóttir – Óperan hundrað þúsund
  • Karen Briem – Hringir Orfeusar og annað slúður

Tónlist og hljóðmynd ársins

  • Arash Moradi – While in battle I'm free, never free to rest
  • Friðrik Margrétar-Guðmundsson – BRÍM 
  • Jóhann G. Jóhannsson – Tumi fer til tunglsins
  • Skúli Sverrisson og Valdimar Jóhannsson – Hringir Orfeusar og annað slúður
  • Þórunn Gréta Sigurðardóttir – Óperan hundrað þúsund

Lýsing ársins

  • Gunnar Hildimar Halldórsson – Fjallabak
  • Mirek Kaczmarek og Jóhann Friðrik Ágústsson – Sýslumaður dauðans
  • Ólafur Ágúst Stefánsson – Árið án sumars
  • Pálmi Jónsson – Hringir Orfeusar og annað slúður
  • Pálmi Jónsson – Ungfrú Ísland

Dans- og sviðshreyfingar ársins

  • Ágústa Skúladóttir – Hliðarspor
  • Cameron Corbett – Ungfrú Ísland
  • Marmarabörn – Árið án sumars
  • Lee Proud – Stormur 
  • Unnur Elísabet Gunnarsdóttir – Litla hryllingsbúðin 

Leikkona ársins í aðalhlutverki

  • Ásthildur Úa Sigurðardóttir – Köttur á heitu blikkþaki
  • Birna Pétursdóttir – Ungfrú Ísland
  • Birta Sólveig Söring Þórisdóttir – Litla hryllingsbúðin
  • Vala Kristín Eiríksdóttir – Þetta er Laddi
  • Þórey Birgisdóttir – Ífigenía í Ásbrú

Leikkona ársins í aukahlutverki

  • Berglind Alda Ástþórsdóttir – Stormur
  • Berglind Alda Ástþórsdóttir – Tóm hamingja
  • Birna Pétursdóttir – Sýslumaður dauðans
  • Katla Margrét Þorgeirsdóttir – Köttur á heitu blikkþaki
  • Kristín Þóra Haraldsdóttir – Heim
Sýningin Innkaupapokinn hlýtur fimm tilnefningar. Ragnar Ísleifur Bragason (lengst itl …
Sýningin Innkaupapokinn hlýtur fimm tilnefningar. Ragnar Ísleifur Bragason (lengst itl hægri á myndinni) er tilnefndur sem leikari ársins í aðalhlutverki.

Leikari ársins í aðalhlutverki

  • Hilmir Snær Guðnason – Köttur á heitu blikkþaki
  • Ragnar Ísleifur Bragason – Innkaupapokinn
  • Sigurður Sigurjónsson – Heim
  • Þórhallur Sigurðsson – Þetta er Laddi
  • Ævar Þór Benediktsson – Kafteinn Frábær

Leikari ársins í aukahlutverki

  • Benedikt Gröndal – Tóm hamingja
  • Björgvin Franz Gíslason – Þetta er Laddi
  • Fannar Arnarsson – Ungfrú Ísland
  • Friðgeir Einarsson – Innkaupapokinn
  • Hákon Jóhannesson – Sýslumaður dauðans

Söngvari ársins

  • Bryndís Guðjónsdóttir – Brúðkaup Fígarós
  • Hanna Dóra Sturludóttir – BRÍM
  • Herdís Anna Jónasdóttir – Óperan hundrað þúsund
  • Una Torfadóttir – Stormur
  • Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir – BRÍM

Dansari ársins

  • Aëla Labbé, Erna Gunnarsdóttir og Orfee Schuijt – Flökt
  • Birta Ásmundsdóttir – When a duck turns 18 a boy will eat her
  • Diljá Sveinsdóttir – Hringir Orfeusar og annað slúður
  • Erna Gunnarsdóttir – Órætt algleymi
  • Íris Ásmundardóttir – Svartir fuglar

Hvatningarverðlaun valnefndar 2025

  • Afturámóti  sviðslistahús: Fámennur en drífandi hópur ungra sviðslistamanna tók yfir Háskólabíó sumarið 2024 og hrinti úr vör nýjum sviðlistavettvangi sem stóð undir hátt í 40 viðburðum á tímum sofandi leikhúsa. Þar voru sýnd bæði ný og nýleg íslensk leikverk í bland við uppistand og tónleika svo breiðum hópi sviðslistafólks gafst rými til að vinna, þróa og sviðsetja hugmyndir sínar. Afturámóti er einstakt framtak sem svarar kalli frjórrar og ört vaxandi sviðslistasenu.
  • Leikhópurinn Lotta: Í tuttugu ár hefur leikhópurinn Lotta gert víðreist um landsbyggðina með frumsamdar barnaleiksýningar sínar, uppfullar af ævintýragleði og galsa. Með starfi sínu hafa þau gefið börnum um land allt tækifæri til að upplifa leikhús á grænum túnum og skógarrjóðrum í heimabyggð svo oftar en ekki verður þeirra fyrsta leikhúsupplifun samofin sumri og náttúru. Framlag Leikhópsins Lottu til menningaruppeldis íslenskra barna er ómetanlegt
  • Sigríður Ásta Olgeirsdóttir: Síðastliðið leikár hefur Sigríður Ásta stigið inn í sviðslistasenuna af feiknar krafti og sýnt bæði frumkvæði og listræna fjölbreytni með eftirtektarverðum árangri. Hún leikstýrði óperunum Gleðilegi geðrofsleikurinn og Varstu búin að vera að reyna að ná í mig?, var danshöfundur og flytjandi í Konukroppar, var í burðarhlutverki í söngleiknum Við erum hér, að ógleymdu því að vera höfundur, framleiðandi og í titilhlutverki í söngleiknum DIETRICH með glæsilegri frammistöðu.

Valnefnd ársins skipa fyrir hönd ýmissa fagfélaga: 

  • Aðalheiður Halldórsdóttir  SSÍ (Sviðslistasamband Íslands)
  • Berglind Pétursdóttir  FÍLD (Félag íslenskra listdansara)
  • Bergþór Pálsson  KLASSÍS (Félag klassískra söngvara)
  • Davíð Guðbrandsson  SAFAS (Samráðsvettvangur fagfélaga í sviðslistum)
  • Einar Aðalsteinsson  FÍL (Félag íslenskra leikara og sviðslitafólks)
  • Elma B Guðmundsdóttir  FTF (Félag tæknifólks)
  • Heba Eir Kjeld  DFÍ (Danshöfundafélag Íslands)
  • Hrund Ólafsdóttir  FLH (Félag leikskálda og handritshöfunda)
  • Jóhann G. Jóhannsson  SAVÍST (Samtök atvinnuveitenda í sviðslistum og tónlist)
  • Nanna Gunnarsdóttir  SL (Sjálfstæðu leikhúsin)
  • Stella Önnudóttir Sigurgeirs  FLB (Félag leikmynda- og búningahöfunda)
  • Viðar Eggertsson  FLÍ (Félag leikstjóra á Íslandi)
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka