Landris mælist áfram í Svartsengi

Horft yfir norðurhluta Grindavíkur og syðri hluta gossprungunnar. Í bakgrunni …
Horft yfir norðurhluta Grindavíkur og syðri hluta gossprungunnar. Í bakgrunni fjallið Þorbjörn og virkjunin í Svartsengi. mbl.is/Árni Sæberg

Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi, sem bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar á svæðinu.

Ef hraði landrissins helst svipaður og hann hefur verið síðustu vikur, má ætla að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat.

Vísindamenn Veðurstofunnar halda áfram að endurskoða mögulega sviðsmyndir á þróun kvikusöfnunar í Svartsengi. 

Jarðskjálftavirkni við kvikuganginn, sem myndaðist 1. apríl síðastliðinn, heldur áfram að dvína. Mest hefur hún verið syðst í ganginum, en hún hefur minnkað jafnt og þétt á undanförnum dögum. Skjálftavirkni á svæðinu við Fagradalsfjall hefur einnig farið minnkandi. 

Hættumat hefur verið uppfært og helst óbreytt. Gildir það til 3.júní að öllu óbreyttu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert