Mannbjörg við strand fiskibáts á Rifi

Frá vettvangi aðgerðanna í morgun.
Frá vettvangi aðgerðanna í morgun. Ljósmynd/Landsbjörg

Mannbjörg varð þegar lítill fiskibátur strandaði við grjótgarðinn fyrir utan höfnina á Rifi snemma í morgun.

Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu að rétt um klukkan 4 í nótt hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar borist neyðarkall á rás 16 frá fiskibáti sem var á leið á miðin frá Rifi. 

Talsverð þoka var á þessum slóðum í nótt og hafði báturinn siglt upp í grjótgarð utan við höfnina á Rifi.

Voru rétt búnir að ganga frá björgunarskipinu

Ekki var nema um klukkustund liðin frá því leit að öðrum fiskibát á Breiðafirði hafði verið hætt og áhöfnin á Björgu, björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi, rétt búin að ganga frá skipinu og því fljót að bregðast við þessu öðru útkalli næturinnar, þegar það barst.

Þegar Björg kom að strandstað var henni siglt alveg upp að bátnum þar sem hann lá utan í garðinum og þannig var hægt að bjarga skipverjanum um borð. Farið var með hann í land þar sem hann fór svo til skoðunar á heilsugæslunni.

Lítill fiskibátur strandaði við grjótgarðinn fyrir utan höfnina á Rifi …
Lítill fiskibátur strandaði við grjótgarðinn fyrir utan höfnina á Rifi snemma í morgun. Ljósmynd/Landsbjörg

Björg fór svo aftur að bátnum, sem og minni björgunarbátur Lífsbjargar, björgunarsveitarinnar á Rifi, þar sem hafist var handa við verðmætabjörgun, en talsvert af lausamunum úr bátnum var á floti í sjónum allt um kring. Báturinn var þá í raun hálf sokkinn þar sem hann lá utan í garðinum.

Lokið var við að hreinsa til á strandstað og báturinn skilinn eftir á garðinum nú á sjöunda tímanum í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert