Andlát: Haraldur Jóhannsson

Haraldur Jóhannsson er látinn, 71 árs að aldri.
Haraldur Jóhannsson er látinn, 71 árs að aldri.

Haraldur Jóhannsson, stofnandi Forvals, lést á líknardeildinni í Kópavogi 16. maí síðastliðinn, 71 árs að aldri.

Haraldur fæddist 8. apríl 1954 og ólst upp í Nesstofu við Seltjörn. Foreldrar hans voru Ólöf Gunnsteinsdóttir og Jóhann Ólafsson en þau voru síðustu ábúendur í Nesi.

Haraldur, sem var þekktur hjá sveitungunum sem Halli í Nesi, gekk í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Hann tók þátt í ungliðastarfi Gróttu og Björgunarsveitarinnar Alberts. Eftir grunnskóla dvaldi hann um tíma í Grimsby á Englandi þar sem hann var hjá móðursystur sinni og fór í enskunám. Síðar lagði hann stund á húsgagnasmíði og var á samningi hjá Emil Hjartarsyni í Trésmiðjunni Meið og lauk sveinsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 1974.

Haraldur kvæntist æskuástinni sinni, Fjólu Guðrúnu Friðriksdóttur, fyrsta vetrardag árið 1976. Sama ár stofnuðu þau heildverslunina Forval sem þau ráku saman allar götur síðan. Fyrstu árin fluttu þau inn leikföng og gjafavöru og færðu sig svo yfir í hár- og snyrtivörur sem þau einblíndu á frá 1996. Forval var umboðsaðili fyrir fjölda þekktra snyrtivörumerkja og ilmhúsa auk þess að framleiða sínar eigin hárvörur og var Haraldur oftast kenndur við fyrirtækið sitt sem Halli í Forval. Árið 2013 seldu þau snyrtivöruhluta fyrirtækisins.

Stofnuðu Spa of Iceland

Samhliða rekstri Forvals kom Haraldur að mörgum fasteigna­tengdum þróunarverkefnum sem og að fjárfestingum í smærri fyrirtækjaverkefnum. Einnig sat hann í stjórn skíðadeildar KR um nokkurt skeið.

Árið 2017 stofnuðu Haraldur og Fjóla Spa of Iceland, íslenskt snyrtivöru- og lífsstílsvörumerki, sem hlotið hefur margar alþjóðlegar viðurkenningar. Það ráku þau saman allt til síðasta dags.

Börn Haraldar og Fjólu eru Guðrún Edda, f. 1977, gift Viðari Þór Haukssyni og eiga þau Fjólu Guðrúnu og Benedikt Þór. Jóhann Friðrik, f, 1979, giftur Bryndísi Haraldsdóttur og börn þeirra eru María Ólöf, Sara Mjöll og Haraldur.

Útför Haraldar verður frá Neskirkju við Hagatorg 27. maí kl. 15.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert