EES-ríkin og ESB efla samstarf á sviði öryggismála

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs, …
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs, Sabine Monauni utanríkisráðherra Liechtenstein og Kaju Kallas utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Ljósmynd/Aðsend

EFTA-ríkin innan EES, Ísland, Noregur og Liechtenstein og Evrópusambandið hafa sammælst um að efla samstarf sitt á sviði utanríkis- og öryggismála.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirritaði sameiginlega yfirlýsingu þess efnis í tengslum við fund EES-ráðsins sem haldinn var í Brussel í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Í yfirlýsingunni er kveðið á um aukið pólitískt samráð og að ríkin samræmi afstöðu til alþjóðamála. Þá er einnig kveðið á um aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála og að ríkin muni vinni saman að því að standa vörð um mannréttindi, þ.m.t. jafnrétti.

„Við núverandi aðstæður á alþjóðavettvangi er mikilvægt að styrkja samstarfið við okkar helstu vina- og samstarfsþjóðir. Samstarf við Evrópusambandið um alþjóðamál hefur frá upphafi verið hluti af EES-samstarfinu og mikilvægt að efla það með þessum hætti,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Funduðu með Kaju Kallas

Utanríkisráðherrar EFTA-ríkjanna þriggja áttu einnig pólitískt samráð við Kaju Kallas utanríkismálastjóra ESB þar sem m.a. var rætt um stöðuna í Úkraínu, þá alvarlegu og hörmulegu stöðu sem við blasir á Gasa og málefni Norðurslóða.

Í ávarpi sínu á EES-ráðsfundinum lagði Þorgerður Katrín áherslu á aukið mikilvægi efnahagslegs öryggis innan EES-samstarfsins og hlutverki þess þegar kemur að eflingu öryggis og viðnámsþróttar innan EES-ríkjanna. Áréttaði hún að viðskiptahindranir geti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslegt öryggi.

Utanríkisráðherra svo fundar í fyrramálið með Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóra utanríkisviðskipta og efnahagslegs öryggis í framkvæmdastjórn ESB sem einnig fer með málefni EES-samstarfsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert