Samtök iðnaðarins (SI) fagna því að Hæstiréttur hafi með nýföllnum dómi eytt réttaróvissu um búvörulögin.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá SI.
Í tilkynningunni rekja SI að aðkallandi hagræðingaráform hafi verið stöðvuð með tilheyrandi óvissu og tilkostnaði eftir dóm héraðsdóms.
Þannig hafi lagaheimildir til hagræðingar ekki enn komið til framkvæmda þrátt fyrir að teljast í rúmt ár til gildandi laga.
Þá rekja SI að í dómnum sé málatilbúnaði Innnes gagnvart samkeppniseftirlitinu hafnað og að með lagasetningunni og undanþágum til handa innlendum framleiðendum hafi aðilum verið mismunað í andstöðu við 65. gr. stjórnarskrár Íslands.
„Í niðurstöðunni felst staðfesting á lagagildi hagræðingarákvæða búvörulaga sem skapar skilyrði fyrir hagræðingu í kjötvinnslu og eykur svigrúm kjötvinnslustöðva til að starfa með hagkvæmari og markvissari hætti.
Það er í takt við það sem tíðkast annars staðar í Evrópu, þar sem stjórnvöld hafa skapað skýran lagaramma fyrir samstarf fyrirtækja í landbúnaði og heimildir til hagkvæmrar framleiðslu afurða án þess að slíkt teljist ganga gegn samkeppnisreglum eða samkeppnishagsmunum.“
Í tilkynningunni segir að SI fagni því að Hæstiréttur hafi fallist á að skýr heimild sé til staðar fyrir samstarf kjötvinnslustöðva með hagræðingu að leiðarljósi.
Slíkt fyrirkomulag stuðli að aukinni hagkvæmni í rekstri, bættri nýtingu fjárfestinga og bæti stöðu íslenskrar matvælaframleiðslu gagnvart erlendum samkeppnisaðilum.
Þá telja SI brýnt að stjórnvöld tryggi áfram skýra og stöðuga löggjöf sem veiti fyrirsjáanleika og styðji við hagkvæma og sjálfbæra matvælaframleiðslu á Íslandi.