#78. - Kallar eftir afsögn ríkislögreglustjóra

Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, tekur enga fanga í ítarlegu viðtali í Spursmálum. Segir hann ríkislögreglustjóra og ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins hafa brugðist skyldum sínum þegar kemur að vernd landamæra ríkisins.

Í þættinum fer Úlfar yfir það hvernig starfslok hans báru að og hvaða ástæður hann telur að búi að baki þeirri ákvörðun dómsmálaráðherra. Hann segir undanbragðalaust að honum hafi verið sýndur reisupassinn.

Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum má nálgast í meðfylgjandi spilara, á Spotify og YouTube, og er hún öllum aðgengileg.

Hlaðvörpin sækja á

Í þættinum mæta stöllurnar Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir en þær halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi, Komið gott. Á miðvikudagskvöld stefndu þær 450 gestum í gamla Austurbæjarbíó og héldu þar uppi stuði langt fram eftir.

Þær ræða fréttir vikunnar sem eru margar og mismunandi. Allt frá nýrri mælingu á fylgi stjórnmálaflokkanna til hnífstunguárásar í Úlfarsárdal.

Fylgstu með Spursmálum á mbl.is alla föstudaga klukkan 14. Upptaka af þættinum er einnig aðgengileg á Spotify og YouTube og öðrum helstu efnisveitum.

Ólöf Skaftadóttir, Úlfar Lúðvíksson og Kristín Gunnardsóttir eru gestir Stefáns …
Ólöf Skaftadóttir, Úlfar Lúðvíksson og Kristín Gunnardsóttir eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum að þessu sinni. María Matthíasdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert