Rjúpan dafnar en krían hrynur

Hér sjást tvær kríur bítast um sandsíli en náttúruunnandi í …
Hér sjást tvær kríur bítast um sandsíli en náttúruunnandi í Húnavatnssýslu hefur í sumar tekið eftir markverðri fækkun í stofninum þar. mbl.is/Eggert

Nú þegar sumarið er gengið í garð lifnar náttúran við og má þá merkja ýmsar breytingar á henni frá fyrri árum. Stangveiðileiðsögumaður í Húnavatnssýslu hefur tekið eftir miklu hruni í kríustofni á svæðinu en segist hins vegar aldrei hafa séð jafn mikið af rjúpu.

Þorsteinn Hafþórsson er fæddur og uppalinn á Blönduósi og hefur fylgst vel með náttúrunni og fuglalífi í sveitinni alla tíð. Í dag starfar hann sem stangveiðileiðsögumaður í nokkrum helstu laxveiðiám landsins auk þess að vera mikill skotveiðimaður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka