Kínversk sendinefnd stóð þar sem hjól kom niður

Grímur Grímsson, forseti allsherjar og menntamálanefndar og Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti …
Grímur Grímsson, forseti allsherjar og menntamálanefndar og Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis taka á móti kínversku sendinefndinni. Ljósmynd/Alþingi.is

Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis segir að atvik þar sem hjól losnaði af flugvél og lenti á Austurvelli í gær sé grafalvarlegt og veki spurningar um öryggi Alþingishússins úr lofti. Hún segir kínverska sendinefnd hafa staðið þar sem dekkið kom niður einungis örfáum mínútum áður.

Fjöldi þingmanna var í Alþingishúsinu þegar hjóliðkom niður og að sögn Þórunnar urðu einhverjir þeirra varir við mikinn dynk. Hjólið kom niður í Kirkjustræti fyrir framan Alþingishúsið áður en það skoppaði frá Alþingishúsinu.

Kínverska sendinefndin ásamt þingmönnum.
Kínverska sendinefndin ásamt þingmönnum. Ljósmynd/Alþingi

„Grafalvarlegt“ 

Í kínversku sendinefndinni var varaforseti alþýðuþjóðþings Kína, Zhang Qingwei, ásamt föruneyti. Þórunn segir að sendinefndin hafi staðið á Kirkjustræti og beðið þess að fara í bílalest um fimm mínútum áður en hjólið kom aðvífandi.

„Ég skoðaði myndatökur úr öryggismyndavélum og í mínum huga er atvikið mjög alvarlegt. Það var mikil mildi að enginn skyldi vera á leið yfir kirkjustrætið þegar hjólið lenti á götunni. Það voru kannski fimm mínútum áður eða svo sem kínverska sendinefndin stóð þarna. Við vorum aðeins á undan áætlun sem betur fer,“ segir Þórunn.

mbl.is/Hafsteinn Snær þorsteinsson

Veki spurningar um öryggi Alþingis 

Hún segir margar spurningar vakna um öryggismál vegna atviksins. „Ekki bara umhverfis þingið heldur einnig fyrir ofan það. Við erum í beinni fluglínu við Reykjavíkurflugvöll og þurfum að skoða þessi mál mjög vel,“ segir Þórunn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert