Með stærstu skjálftum frá því að virkni hófst

Skjálftavirknin hófst árið 2021.
Skjálftavirknin hófst árið 2021. mbl.is/Árni Sæberg

Skjálfti af stærð 3,7 mældist við Grjótárvatn á Mýrum klukkan 18.05 í dag. 

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að þetta sé með stærstu skjálftum sem mælst hafa á svæðinu frá því að virkni hófst árið 2021.

Þann 15. apríl og 8. maí mældust einnig skjálftar sem voru 3,7 að stærð. Fundust þeir skjálftar á nærliggjandi svæðum, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert