Styrkur fíns svifryks (PM1) hefur verið hækkaður á nokkrum mælistöðvum í borginni yfir helgina og í dag. Hækkunina má líklega rekja til mengunar frá skógareldum í Kanada.
Samkvæmt kanadísku veðurstofunni hafa mengunarský frá skógareldunum dreifst um Kanada, Bandaríkin og til Evrópu.
Þeir sem viðkvæmir eru fyrir í öndunarfærum gætu fundið fyrir óþægindum en verði um þau vart skal takmarka útivist eins og unnt er.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.
Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgaedi.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.
Loftgæðavefur Umhverfisstofnunar metur loftgæði með litakóðanum hér að ofan.
Mjög góð = Lítil sem engin loftmengun. Líklega engin heilsufarsleg áhrif.
Góð = Lítils háttar loftmengun. Lítil sem engin heilsufarsleg áhrif.
Sæmileg = Nokkur loftmengun. Mjög viðkvæmir einstaklingar og einstaklingar með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma geta fundið fyrir einkennum vegna aukins styrks loftmengunarefna í andrúmslofti.