Fimmtán fengu fálkaorðuna í dag

Frá Bessastöðum í dag.
Frá Bessastöðum í dag. Ljósmynd/Forseti Íslands

Forseti Íslands sæmdi fimmtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag.

Forsetinn sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní.

Eftirfarandi hlutu fálkaorðuna:

  • Albert Eymundsson, fyrrverandi skólastjóri, fyrir framlag sitt til mennta-, íþrótta- og ungmennafélagsstarfa í heimabyggð.
  • Andrea Þórunn Björnsdóttir, sjálfboðaliði í samfélagsþágu, fyrir framlag til góðgerðarmála og samfélags.
  • Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur, fyrir framlag til varðveislu, rannsóknar og miðlunar íslenskrar tónlistarsögu.
  • Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur og lýðheilsufræðingur, fyrir brautryðjandastarf á sviði lýðheilsu og velsældar á Íslandi.
  • Guðrún Ágústsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og rauðsokka, fyrir störf í þágu jafnréttis og kvennabaráttu.
  • Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur, fyrir störf í þágu sjálfbærni, jafnréttis- og mannúðarmála.
  • Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur, fyrir forystustörf í öryggisvörnum vegna jarðelda.
  • Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, fyrir störf í þágu fjölmenningar og þolenda kynbundins ofbeldis.
  • Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístundamála, fyrir brautryðjanda- og forvarnarstörf í þágu velferðar barna.
  • Unnar Vilhjálmsson, frjálsíþróttaþjálfari og kennari, fyrir framlag til íþrótta- og félagsstarfa með börnum.
  • Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og höfundur, fyrir framlag til leiklistar og samfélagsmála.
  • Vilborg Guðbjörg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur, fyrir framlag til geðheilbrigðismála barna, unglinga og fjölskyldna.
  • Þorlákur Hilmar Morthens myndlistarmaður, fyrir sjálfboðastörf í þágu endurhæfingar fanga.
  • Þorsteinn Loftsson, prófessor emeritus í lyfjafræði, fyrir frumkvöðlastarf í lyfjavísindum og nýsköpun.
  • Þórður Þorkelsson barnalæknir, fyrir framlag til nýburalækninga og barnagjörgæslu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert