Björgunarsveitir leita að Sigríði Jóhannsdóttur í Elliðaárdal í Reykjavík í kvöld. Leitin hefur staðið yfir frá því klukkan eitt í dag og búist er við að hún haldi áfram fram á kvöld.
Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir nýjar vísbendingar hafa leitt björgunarsveitir í Elliðaárdalinn.
Sigríður sást síðast á föstudaginn við Digranesheiði í Kópavogi.
Lögreglan hefur áður beðið fólk sem býr á því svæði að athuga hýbýli sín og skoða upptökur úr eftirlitsmyndavélum.
Lögreglan biður þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Sigríðar að hafa samband við lögregluna í síma 112 eða 444 1000 eða með tölvupósti á netfangið 100@lrh.is