Bóndi kærður fyrir ofbeldi og hótanir

Matvælastofnun.
Matvælastofnun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Matvælastofnun hefur kært bónda til lögreglunnar fyrir ofbeldi og hótanir í garð eftirlitsmanns hennar.

Fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni að starfsmenn hennar (eftirlitsdýralæknir og dýraeftirlitsmaður) hafi nýlega farið í eftirlit á sauðfjárbú í suðausturumdæmi.

Bóndinn hleypti eftirlitsfólkinu inn í fjárhúsið en þegar dýraeftirlitsmaðurinn setti út á velferð fjárins lagði bóndinn hendur á hann og hætti ekki fyrr en eftirlitsdýralæknirinn hrópaði á hann að hætta, að því er segir í tilkynningunni. Ekki tókst að ljúka eftirlitinu í það skiptið.

„Tveimur vikum síðar var farið aftur í eftirlit á sama bæ og nú í lögreglufylgd og tókst þá að ljúka eftirlitinu. Að loknu eftirliti var bóndanum skýrt frá þeim frávikum sem eftirlitið hafði leitt í ljós. Bóndinn spurði þá eftirlitsmanninn í tvígang og í viðurvist lögreglu hvort hann ætti að skjóta hann,” segir í tilkynningunni.

Fram kemur að stofnunin líti á þessa hegðun mjög alvarlegum augum en því miður sé hún ekki einsdæmi. Yfirleitt gangi eftirlitið þó vel.

„Í almennum hegningarlögum er að finna ákvæði sem segir að hver sá sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu skuli sæta fangelsi allt að 6 árum. Beita megi sektum ef brot sé smáfellt.

Matvælastofnun hefur kært bæði brotin til lögreglu.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert