Einn fluttur á bráðamóttöku

Einn var fluttur á bráðamóttökuna til skoðunar í kjölfarið.
Einn var fluttur á bráðamóttökuna til skoðunar í kjölfarið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Strætisvagn og fólksbíll skullu saman á horni Hverfisgötu og Klapparstígs fyrr í kvöld.

Vísir greindi fyrst frá.

Einn var fluttur á bráðamóttöku í kjölfarið, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu. Slökkviliðsmenn voru sendir á vettvang með dælubíl auk sjúkraflutningamanna og lögreglu.

Ekki er hægt að segja til um ástandið á viðkomandi að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert