Þjóðhátíðardeginum sýnd mikil vanvirðing

Palestínskum fánum var veifað fyrir framan Alþingi í gær.
Palestínskum fánum var veifað fyrir framan Alþingi í gær. mbl.is/Hákon

Þjóðhátíðardegi Íslands og þjóðfánanum var sýnd mikil vanvirðing á hátíðarhöldum við Austurvöll í gær.

Þetta sagði Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í morgun undir dagskrárliðnum störf þingsins.

Þarna átti Rósa við hóp mótmælenda sem mætti með palestínska fána á fundinn.

„Að hópar fólks skuli koma saman á þessum degi við Alþingishúsið og veifa fána annars lands og hrópa ókvæðisorðum að ráðamönnum og öðrum viðstöddum er óboðlegt,” sagði Rósa.

mbl.is/Hákon

„Þetta var dapurleg tilraun til að niðurlægja íslensku þjóðina og hrein vanvirðing við þjóðfánann,” bætti hún við og sagði að mótmælendur hefðu næg tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri aðra daga. Þetta sem gerðist í gær ætti ekki að viðgangast.

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi.
Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi. mbl.is/Karítas
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert